frístundakort

rig

 

 

26.04.2011

Meistaramót Íslands 2011

Meistaramót Íslands var haldið í TBR húsunum fyrir skemmstu. Mótið gekk vel og var glæsilegt. Sýnt var beint frá úrslitum í Meistaraflokki í Ríkissjónvarpinu.

Úrslitaleikir í A- og B-flokki fóru fram á sunnudagsmorgni og voru leikmenn frá TBR í nærri öllum úrslitaleikjunum. Úrslit í Meistaraflokki hófust svo rétt um kl 14 og voru eins og áður sagði í beinni útsendingu í sjónvarpinu.

Ljóst var fyrir úrslitaleikinn að Helgi Jóhannesson myndi ekki verja titil sinn í einliðaleik karla. Til úrslita léku þeir Magnús Ingi Helgason, TBR og Atli Jóhannesson, TBR. Atli byrjaði mjög vel og leiddi nánast alla fyrstu lotuna. Magnús kom þó til baka og náði að sigra í lotunni 21-19. Í lotu tvö virtist Magnús Ingi vera að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn og var kominn vel yfir og stutt eftir af lotunni. Atli var þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og náði að knýgja fram oddalotu með því að sigra 25-23 eftir mikla dramatík. Magnús Ingi náði strax undirtökunum í oddalotunni og leit aldrei til baka. Magnús hafði yfir alla lotuna og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri 21-16.

Maggi og Atli
Magnús Ingi og Atli

Í einliðaleik kvenna mættust tvær bestu badmintonkonur landsins í úrslitum. Það eru þær Ragna Ingólfsdóttir og Tinna Helgadóttir. Fyrirfram höfðu margir talið að þetta yrði tiltölulega auðveldur leikur hjá Rögnu en Tinna beit vel frá sér og það var töluvert spil í leiknum. Ragna sigraði í fyrstu lotunni 21-16. Í lotu tvö var Ragna alltaf á undan og þegar uppi var staðið hafði hún sigrað í seinni lotunni 21-13 og þar með tryggt sér Íslandsmeistaratitillinn í 8. sinn. Ragna jafnaði þar með met Elsu Nielsen en þær tvær hafa oftast orðið Íslandsmeistarar í kvennaflokki.

Ragna og Tinna
Ragna og Tinna

Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Íslandsmeistarar undanfarinna ára þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason. Þeir léku gegn Einari Óskarssyni og Arthúri Geir Jósefssyni en allir þessir leikmenn koma frá TBR. Einar og Arthúr byrjuðu betur en náðu þó aldrei að hrista Helga og Magnús Inga af sér. Það fór þó svo að Helgi og Magnús Ingi sigruðu í fyrstu lotu 21-18. EFtir þetta var ekki aftur snúið. Þeir Helgi og Magnús sýndu hvers þeir eru megnugir og sigruðu í lotu tvö 21-10 og gátu þar með fagnað sínum 5. Íslandsmeistaratitli í tvíliðaleik í röð.

Helgi, Magnús, Einar og Arthúr
Helgi, Magnús Ingi, Arthúr Geir og Einar

Í tvíliðaleik kvenna léku til úrslita Íslandsmeistarar síðasta árs; Katrín Atladóttir og Ragna Ingólfsdóttir annars vegar og Íslandsmeistarar ársins 2009 þær Erla Björg Hafsteinsdóttir og Tinna Helgadóttir. Leikurinn var jafn til að byrja með en þær Katrín og Ragna sigu fram úr um miðja lotuna og sigruðu örugglega 21-14. Lota tvö þróaðist svipað og fyrri lotan, jafnræði til að byrja með og svo sigu þær aftur fram úr þær Katrín og Ragna og sigruðu 21-16. Katrín Atladóttir og Ragna Ingólfsdóttir eru því Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna 2011.

Ragna, Katrín, Erla og Tinna
Ragna, Katrín, Erla Björg og Tinna

Í tvenndarleik léku til úrslita Íslandsmeistarar undanfarinna ára; systkinin Magnús Ingi og Tinna. Þau léku gegn Helga Jóhannessyni og Elínu Þóru Elíasdóttur en öll spila þau fyrir TBR. Þetta var fyrsti úrslitaleikur Elínar Þóru á Íslandsmóti enda ekki nema 19 ára gömul. Þau Magnús og Tinna sem fyrirfram voru talin sigurstranglegasta parið í mótinu stóðu uppi sem sigurvegarar þó svo að Helgi og Elín hafi bitið vel frá sér. Leikurinn endaði 21-15 21-16. Magnús Ingi hafði þar með tryggt sér þriðja titilinn og er því þrefaldur Íslandsmeistari 2011 og bætist þar með í hóp 14 annarra leikmanna sem hafa tekist það. Frábær árangur hjá Magnúsi Inga.

Magnús, Tinna, Helgi og Elín Þóra
Magnús Ingi, Tinna, Helgi og Elín Þóra