09.03.2011
TBR með yfirburði á Íslandsmóti unglinga - 19 af 22 tiltlum til TBR
TBR sýndi mikla yfirburði á nýafstöðnu Íslandsmóti unglinga sem fram fór á Siglufirði dagana 5.-6. mars. Krakkarnir úr TBR lönduðu alls 19 Íslandsmeistaratitlum af 22 mögulegum.
Í einliðaleik snáða (U11) þá komst því miður enginn TBR-ingur í úrslitaleikinn en í einliðaleik í snótaflokki (U11) sigraði Andrea Nilsdóttir úr TBR annað árið í röð, en Andrea er aðeins 10 ára gömul og á eftir 1 ár í flokknum. Greinilega mikið efni þar á ferð.

Andrea með Íslandsbikarinn ásamt öðrum keppendum TBR í Snáða og Snótaflokki
Í Hnokka og Tátuflokki var reiknað með að þau Davíð Bjarni Björnsson og Alda Karen Jónsdóttir, bæði úr TBR, myndu sigra með nokkrum yfirburðum. Þau Davíð og Alda stóðu við sitt og sigruðu meðmiklum yfirburðum í einliðaleiknum og saman sigruðu þau í tvenndarleiknum.

Davíð Bjarni og Alexander Örn

Alda Karen og Harpa

Alda Karen, Davíð Bjarni, Alexander Örn og Harpa
Alda gerði sér svo lítið fyrir og sigraði líka í tvíliðaleiknum ásamt Margréti Nilsdóttur. Alda varð því þrefaldur Íslandsmeistari í flokknum.

Margrét, Alda Karen, Eyrún og Ingibjörg Sóley
Íslandsmeistarar í einliðaleik í Sveina og Meyjaflokki urðu þau Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir bæði úr TBR. Sigríður sigraði með yfirburðum og tapaði ekki lotu allt mótið. Daníel mætti gríðarlega einbeittur og sýndi hvers hann er megnugur og spilaði eins og sá sem valdið hefur.

Daníel og Kristófer Darri

Sigríður og Lína Dóra
Sigríður og Daníel, líkt og Davíð og Alda, sigruðu svo líka í tvenndarleiknum auk þess sem Sigríður sigraði í tvíliðaleiknum ásamt Jónu Kristínu Hjartardóttur. Sigríður varð þar með þrefaldur Íslandsmeistari í Meyjaflokki árið 2011.

Jóna Kristín, Sigríður, Lína Dóra og Kristjana María

Sigríður, Daníel, Jóna Kristín, Stefán Ás
Drengjaflokkurinn (U17) var sennilega sá flokkur sem menn fyrirfram hefðu talið hvað opnastur þrátt fyrir að Thomas Thomsen úr TBR hafi þótt líklegur til afreka. Sigurður Sverrir Gunnarsson líka úr TBR kom skemmtilega á óvart og komst alla leið í úrslitaleikinn sjálfan en þar stóð Thomas hinu megin við netið og reyndist aðeins of stór munnbiti fyrir Sigurð.

Thomas og Sigurður Sverrir
Úrslitaleiksins í einliðaleik í Telpuflokki (U17) hafði verið beðið með eftirvæntingu. Þar léku til úrslita þær Margrét Jóhannsdóttir og Sara Högnadóttir báðar úr TBR. Þessar tvær hafa barist oft og mörgu sinnum í vetur og undanfarin ár. Margrét var mjög ákveðin og sigraði nokkuð örugglega í leiknum. Þær stöllur léku svo saman í tvíliðaleiknum og sigruðu mótið.

Margrét og Sara

Margrét, Sara og Sædís Björk - á myndina vantar Margréti Finnbogadóttur
Óvæntustu úrslitin urðu þó í tvíliðaleik í Drengjaflokki. Þar stóðu í úrslitum þeir Sigurður Sverrir og Þorkell Ingi Eriksson frá TBR og Steinn og Jóhannes Þorkelssynir frá ÍA. Steinn og Jóhannes byrjuðu betur og unnu fyrstu lotuna og voru komnir í vænlega stöðu í lotu tvö þegar Þorkell og Sigurður náðu á frábæran hátt að snúa leiknum við og sigra. Fyrsti Íslandsmeistaratitill þeirra beggja í höfn.

Sigurður Sverrir, Þorkell Ingi og Jóhannes Þorkelsson - á myndina vantar Stein Þolrkelsson
Í tvenndarleiknum voru það þau Margrét og Thomas sem sigruðu. Margrét var þar með orðin þrefaldur Íslandsmeistari. Þau lögðu í úrslitum þau Stein Þorkelsson, ÍA og Huldu Lilju Hannesdóttur úr TBR.

Thomas, Margrét, Steinn og Hulda Lilja
Í Piltaflokki stóð baráttan á milli þeirra Nökkvar Rúnarssonar úr TBR og Kristins Inga Guðjónssonar úr BH. Þeir hafa mæst nokkru sinnum í vetur og hafa unnið hvorn annan þó svo Nökkvi hafi unnið aðeins oftar. Nökkvi spilaði sennilega einn af sínum bestu leikjum á ferlinum í úrslitaleiknum. Gríðarlega einbeiting og kraftur einkenndi spilið hans auk þess sem það fór ekki fram hjá neinum að hungrið eftir sigri var engu líkt. Nökkvi sigraði með glæsibrag í tveimur lotum og gat fagnað sínum fyrsta og síðasta Íslandsmeistaratitli í einliðaleik í unglingaflokkum þar sem Nökkvi gengur upp úr unglingaflokkunum eftir veturinn.

Nökkvi og Kristinn Ingi
Í Stúlknaflokki reiknuðu allir með sigri hjá Rakel Jóhannesdóttur, enda Rakel búin að vera yfirburðarmanneskja í flokknum í vetur auk þess sem hún hefur unnið einhver mót í Meistaraflokki. Rakel stóð undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar og landaði Íslandsmeistaratitlinum örugglega en líkt og Nökkvi gengur Rakel upp úr unglingaflokkunum í lok vetrar.

Rakel og María
Í tvíliðaleik í Piltaflokki var beðið eftir uppgjöri milli þeirra Nökkva og Thomasar gegn BH strákunum Kristni Inga og Ólafi Guðmundssyni. Thomas sem spilar upp fyrir sig í tvíliðaleik átti kost á því að verða þrefaldur Íslandsmeistari með sigrinum og Nökkvi líka þar sem hann átti eftir að spila úrslitaleik í tvenndarleik. TBR strákarnir sýndu allar sínar bestu hliðar og hreinlega völtuðu yfir andstæðinga sína og gátu fagnað Íslandsmeistaratitlinum í tvíliðaleik.

Thomas, Nökkvi, Kristinn Ingi og Ólafur
Í tvíliðaleik í Stúlknaflokki mættust í úrslitum Rakel og Elín Þóra Elíasdóttir annars vegar og María Árnadóttir og Elisabeth Christensen hins vegar, þær koma allar úr TBR. Elín og Rakel sýndu yfirburði og sigruðu örugglega og Rakel þar með búin að landa öðrum titli í mótinu og átti eftir að leika til úrslita í tvenndarleiknum. Það var því ljóst að annað hvort Rakel eða Nökkvi yrðu þrefaldir Íslandsmeistarar í lok móts því þau léku gegn hvort öðru í úrslitum.

Elín Þóra, Rakel, María og Elisabeth
Úrslitalekurinn var hrikalega jafn og spennandi og réðst á lokasprettinum. Nökkvi sem lék með Jóhönnu Jóhannsdóttur og Rakel sem lék með Ólafi úr BH ætluðu hvorugt að gefa eftir. En það getur aðeins verið einn sigurvegari og í lokin gátu Nökkvi og Jóhanna lyft höndunum upp í loftið og fagnað sigri. Nökkvi varð því þrefaldur Íslandsmeistari í Piltaflokki 2011.

Nökkvi, Jóhanna, Rakel og Ólafur
Þess ber einnig að geta að þar sem Thomas Thomsen meðspilari Nökkva sigraði í einliða- og tvenndarleik í U17 og tvíliðaleikinn með Nökkva í U19 þá er hann einnig þrefaldur Íslandsmeistari 2011.

Íslandsmeistarar TBR í unglingaflokkum 2011

Þrefaldir Íslandsmeistarar 2011
TBR hópurinn stóð sig gríðarlega vel á mótinu og er félagið virkilega stolt af frábærum hópi og greinilegt að verið er að stefna í rétta átt. Stór hópur unglinga æfir af kappi alla daga vikunnar hjá félaginu og má því segja framtíð félagsins sé björt og að eldri spilarar þurfa virkilega að vera á tánum því unga kynslóðin fer senn að banka á dyrnar.
|