20.12.2010
Jólahlaðborð TBR
TBR hélt sitt árlega jólahlaðborð fyrir stjórn og starfsfólk nú fyrir skemmstu. Á Jólahlaðborðinu er alltaf mikið gaman og mikið fjör og alltaf eitthvað sprellað. Á borðstólum var glæsilegur matur frá veisluþjónustunni Veislan.
Mikið var sungið og sprellað myndaðir voru hinir ýmsu kórar. Til að mynda urðu til Tenórarnir 14, Divurnar og Frostrósir TBR. Leikritið var á sínum stað og í ár var Evrópufrumflutningur á leikritinu Prinsessan sem gat ekki hlegið. Samið hafði verið lag sem kalla má TBR-lagið og verður vonandi lag félagsins í framtíðinni.

Tenórarnir 14
|

Dívurnar
|

Vignir Sigurðsson í hlutverki prinsessunnar sem gat ekki hlegið
Svo var haldin Eurovision keppni TBR þar sem ma. Hera Björk (Sigfús Ægir) og Alexander Rybak (Daníel Thomsen) stigu á svið.

Jóhanna og Árni Gestur syngja Playing with Fire
|

Sigfús Ægir í gervi Heru Bjarkar
|

Það var Jóhann Kjartansson yfirþjálfari TBR sem var veislustjóri kvöldsins og ræðumaður kvöldsins var Ívar Oddsson.
|