07.12.2010
Ljúflingamót TBR 2010
TBR hélt sitt árlega Ljúflingamót fyrir 11 ára og yngri. Mótið er skipulagt þannig að allir spila jafn marga leiki og allir fá verðlaun eins og gert er ráð fyrir í Íþróttanámsskrá ÍSÍ um keppni barna á þessum aldri.

Mótið í ár heppnaðist mjög vel og voru þátttakendur yfir 60 talsins. Keppendur komu frá allls 5 félögum; TBR, BH, Aftureldingu, ÍA og UMSB.
|