frístundakort

rig

 

 

10.01.2011

Meistaramót TBR 2011

Fyrsta mót ársins 2011 leit dagsins ljós um helgina. Meistaramót TBR er iðulega fyrsta mótið sem haldið er á hverju ári. Mótið var hið glæsilegasta og var mikil keppni á öllum vígstöðvum.

Í einliðaleik karla mættust í úrslitum bræðurnir Helgi og Atli Jóhannessynir. Helgi hafði lagt Daníel Thomsen í undanúrslitum fyrr um daginn og Atli sigraði sömuleiðis Arthúr Geir Jósefsson en allir koma þeir úr TBR. Helgi byrjaði betur í úrslitaleiknum og sigraði í fyrstu lotunni 21-12. Önnur lotan var jöfn og spennandi og jafnt var á öllum tölum. Það fór þó svo að Atli vann lotuna 21-19 og grípa þurfti til oddalotu. Oddalotan var, líkt og önnur lotan, jöfn og spennandi en þegar upp var staðið hafði Helgi sigrað 21-18. Glæsilegur leikur og skemmtilegur, mikið spil og flott badminton.

Sigurvegarar í einliðaleik karla
Helgi og Atli

Í einliðaleik kvenna mættust í úrslitum þær Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir báðar úr TBR. Í kvennaflokki höfðu aðeins verið tveir riðlar og því erfitt að segja til um hverjir hafi mæst í eiginilegum undanúrslitum. Þorbjörg Kristinsdóttir, úr TBR, hafði staðið sig mjög vel á fyrri degi mótsins og meðal annars unnið Snjólaugu en tapaði fyrir Karitas Ósk Ólafsdóttur líka úr TBR, sem hins vegar tapaði fyrir Snjólaugu, og eftir útreikninga stóð Snjólaug best að vígi og komst því í úrslitaleikinn. Rakel hins vegar sigraði í öllum sínum leikjum í riðlakeppninni af miklu öryggi. Ekkert lát var á spilamennskunni hjá Rakel í úrslitaleiknum og má segja að hún hafi stýrt leiknum frá upphafi til enda. Leikurinn endaði 21-19 21-17 en Rakel var með yfirhöndina mest allan tímann og sigraði verðskuldað.

Sigurvegarar í einliðaleik kvenna
Rakel og Snjólaug

Úrslitaleikinn í tvíliðaleik karla spiluðu bræðurnir Helgi og Atli svo saman gegn þeim Bjarka Stefánssyni og Daníel Thomsen en allir fjórir koma úr TBR. Leikurinn gekk hratt fyrir sig og lítið var um spil. Bæði lið gerðu töluvert af mistökum úr auðveldum stöðum. Leikurinn endaði 21-16 21-17 fyrir Helga og Atla.

Sigurvegarar í tvíliðaleik karla
Atli, Helgi, Daníel og Bjarki

Tvíliðaleikur kvenna bauð upp á töluvert meira spil en karlaleikurinn. Þar mættust Snjólaug Jóhannsdóttir og Karitas Ósk Ólafsdóttir báðar úr TBR og Rakel Jóhannesdóttir og Jóhanna Jóhannsdóttir líka báðar úr TBR. Fyrri lotan var gríðarlega jöfn en þó höfðu Rakel og Jóhanna yfirhöndina lengi vel. Í lok lotunnar tókst Snjólaugu og Karitas þó að snúa við blaðinu og sigruðu 21-19. Í lotu tvö var eins og þær Rakel og Jóhanna hefðu brotnað aðeins við það að tapa fyrstu lotunni og Snjólaug og Karitas gengu á lagið og sigruðu nokkuð örugglega 21-15.

Sigurvegarar í tvíliðaleik kvenna
Snjólaug, Karitas, Rakel og Jóhanna

Lokaleikurinn var svo tvenndarleikurinn. Þar léku til úrslita þau Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir annars vegar og þau Arthúr Geir Jósefsson og Halldóra Elín Jóhannsdóttir hins vegar. Það er skemmst frá því að segja að Atli og Snjólaug spiluðu virkilega vel og sigruðu örugglega 21-16 21-16.

Sigurvegarar í tvenndarleik
Snjólaug, Atli og Arthúr Geir, á myndina vantar Halldóru Elínu

Úrslit í öðrum flokkum urðu sem hér segir:

A - Flokkur

Einliðaleikur karla
1. sæti: Reynir Guðmundsson KR
2. sæti: Geir Svanbjörnsson TBR

Einliðaleikur kvenna
1. sæti: Sigríður Árnadóttir TBR
2. sæti: Hulda Lilja Hannesdóttir TBR

Tvíliðaleikur karla
1. sæti: Jón Tryggvi Jóhannsson/Geir Svanbjörnsson TBR
2. sæti: Nökkvi Rúnarsson/Ívar Oddsson TBR

Tvíliðaleikur kvenna
1. sæti: Berta Sandholt/Unnur Björk Elíasdóttir TBR
2. sæti: Dagný Ágústsdóttir/Harpa Gísladóttir UMFA

Tvenndarleikur
1. sæti: Ívar Oddsson/Berta Sandholt TBR
2. sæti: Jón Tryggvi Jóhannsson/Guðrún Björk Gunnarsdóttir TBR

B - Flokkur

Einliðaleikur karla
1. sæti: Stefán Ás Yngvarsson UMFA
2. sæti: Guðni Agnar Ágústsson TBR

Einliðaleikur kvenna
1. sæti: Margrét Finnbogadóttir TBR
2. sæti: Jóna Kristín Hjartardóttir TBR

Tvíliðaleikur karla
1. sæti: Guðni Agnar Ágústsson/Hilmar Páll Hannesson TBR
2. sæti: Guðmundur Ágúst Thoroddsen/Stefán Ás Yngvarsson UMFA

Tvenndarleikur
1. sæti: Hilmar Páll Hannesson/Margrét Finnbogadóttir TBR
2. sæti: Guðni Agnar Ágústsson/Jóna Kristín Hjartardóttir TBR