frístundakort

rig

 

 

17.01.2011

RIG 2011 lokið

Unglingameistaramót TBR er hluti af Reykjavík International Games og hefur verið frá upphafi leikanna. Mótið fór fram nú um helgina og var hið glæsilegasta. Skemmtilegt að fá erlenda leikmenn í heimsókn en í elsta flokknum voru skráðir til leiks fimm Svíar auk þess sem þátttakendur frá Færeyjum voru í yngstu tveimur flokkunum.

Leikarnir voru settir í Laugardalshöll með glæsilegri setningarathöfn þar sem fulltrúar allra íþróttagreinanna taka þátt.

Setningarathöfn
Frá setningarathöfn í Laugardalshöll

Mótið hófst á laugardagsmorgun af krafti með einliðaleik og var svo spilað fram í undanúrslit í öllum greinum og flokkum. Mótinu var svo framhaldið á sunnudagsmorgni og lauk með úrslitaleikjum sem hófust um kl 14:00 á sunnudag.

Úrslit urðu sem hér segir:

U13 - Hnokkar og Tátur

Tátur

Hnokkar

Einliðaleikur Hnokkar:
1. sæti: Davíð Bjarni Björnsson, TBR
2. sæti: Alexander Örn Kárason, ÍA

Einliðaleikur Tátur:
1. sæti: Alda Karen Jónsdóttir, TBR
2. sæti: Kristina Eriksen, Færeyjum

Tvíliðaleikur Hnokkar:
1. sæti: Bartal Poulsen/Jákup Jacobsen, Færeyjum
2. sæti: Alexander Örn Kárason/Steinar Bragi Gunnarsson, ÍA

Tvíliðaleikur Tátur:
1. sæti: Alda Karen Jónsdóttir/Margrét Nilsdóttir, TBR
2. sæti: Gunnva K. Jacobsen/Kristina Eriksen, Færeyjum

Tvenndarleikur Hnokkar/Tátur
1. sæti: Davíð Bjarni Björnsson/Alda Karen Jónsdóttir, TBR
2. sæti: Bartal Poulsen/Kristina Eriksen, Færeyjum