24.02.2011
Keppnishópur unglinga gerði það gott í Danmörku
Keppnishópur unglinga hefur farið ört stækkandi undanfarin ár í TBR sem er mikið gleðiefni fyrir félagið. Hópurinn hélt í sína árlegu keppnisferð til Danmerkur, U19 til Næstved og U17 fór til Randers. Íslensku keppendunum gekk vel og unnu sumir til verðlauna.
Í U17 bar það helst til tíðinda að Margrét Jóhannsdóttir sigraði í bæði einliðaleik og tvíliðaleik, ásamt Söru Högnadóttur, en þær kepptu báðar í M-flokki sem er næst sterkasti flokkurinn á danskan mælikvarða. Greinilegt að þær stöllur eiga heima meðal þeirra bestu í Danmörku.
Fleiri Íslendingar gerðu það gott í Randers en Margrét Finnbogadóttir sigraði í einliðaleik í A-flokki, sem er þriðji sterkasti flokkurinn. Stefán Þór Bogason sigraði í einliðaleik í C-flokki og í tvíliðaleik ásamt Eið Ísak Broddasyni. Þorkell Ingi Eriksson og Sigurður Sverrir Gunnarsson sigruðu í A-flokki í U17 sem og þær Unnur Björk Elíasdóttir og Hulda Lilja Hannesdóttir. Að lokum sigruðu svo Margrét Finnbogadóttir og Hilmar Páll Hannesson í tvenndarleik í C-flokki.
U19 fór eins og áður sagði til Næstved. María Árnadóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í einliðaleik í A-flokki. Þar sem ekki var keppt í A-flokki hjá strákunum voru íslensku strákarnir settir í M-flokk og stóðu sig mjög vel. Nökkvi Rúnarsson var næst því að komast áfram upp úr sínum riðli en tókst það því miður ekki. Í tvíliða og tvenndarleikjunum komust Íslendingarnir í 8-liða - undanúrslit en náðu því miður ekki á pall þar.
Góð ferð í alla staði og mikilvæg reynsla í bankann fyrir leikmennina. Greinilegt að okkar fólk er í mikilli framför og verður gaman að fylgjast með á komandi árum.
|