13.05.2011
Uppskeruhátíð barna og unglinga í TBR 2011
Uppskeruhátíð barna og unglinga í TBR fór fram í Þróttheimum fimmtudaginn 12. maí sl. Uppskeruhátíðin er skemmtilegt kvöld þar sem mikið er sprellað og haft gaman.
Kvöldið byrjar á því að TBR býður öllum sem mæta í pizzuveislu til þess að allir séu saddir og vel haldnir þegar skemmtunin gengur í garð. Krakkarnir eru svo sjálf með skemmtiatriði sem þau hafa undirbúið annað hvort ein eða nokkur saman í hóp.


TBR veitir svo viðurkenningarskjöl til þeirra barna og unglinga sem skarað hafa fram úr yfir veturinn. Veitt er viðurkenning fyrir ástundun, framfarir og hegðun.

Það er Árni Þór þjálfari í TBR sem skipuleggur hátíðina og sér til halds og trausts hefur hann unglingaráð TBR sér við hlið.
|