frístundakort

rig

 

 

23.01.2012

Unglingameistaramót TBR - RIG 2012

Unglingameistaramót TBR var hluti af Reykjavik International Games 2012 eins og undanfarin 5 ár. Um 30 Færeyingar kepptu í mótinu ásamt íslenskum keppendum. TBR húsið iðaði af lífi og sjaldan verið fleiri samankomnir á einu unglingamóti. Fjöldi útlendinga setti skemmtilegan svip á mótið og vonandi að þetta sé það sem koma skal í framtíðinni.

Í Hnokka- og Tátuflokki báru færeysku krakkarnir sigur úr býtum. Bartal Poulsen og Gunnva K Jacobesen sigruðui örugglega í öllum þremur greinunum. Í einliðaleik sigraði Bartal Andra Snæ Axelsson frá ÍA. Í tvíliðaleik ásamt Brandi Jacobsen og í tvenndarleik með Gunnva. Gunnva lagði í úrslitum í einliðaleik Andreu Nilsdóttur úr TBR auk þess að sigra í tvíliðaleik með Marjun Á Lákjuni.

Hnokkar Tátur

Í Sveinaflokki voru íslensku strákarnir alls ráðandi. Til úrslita í einliðaleiknum léku þeir Pálmi Guðfinnsson TBR og Davíð Bjarni Björnsson TBR. Það fór svo að Pálmi sigraði í tveimur lotum. Í einliðaleik í meyjaflokki stóð uppi sem sigurvegari Alda Karen Jónsdóttir úr TBR. Hún lagði í úrslitum Hörpu Hilmisdóttur úr UMSB í tveimur lotum. Í tvíliðaleik sveina sigruðu þeir Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson úr TBR og hjá stelpunum sigruðu þær Alda Karen Jónsdóttir og Margrét Nilsdóttir TBR. Í tvenndarleiknum urðu svo hlutskörpust þau Kristófer Darri Finnsson og Margrét Nilsdóttir.

Sveinar Meyjar

Í Drengja og Telpuflokki var keppnin gríðarlega spennandi þó svo að íslensku keppendurnir hafi verið ögn sterkari en þeir færeysku. Til úrslita í einliðaleik í Drengjaflokki léku þeir Daníel Jóhannesson TBR og Eiður Ísak Broddason TBR. Daníel sigraði eftir mikla baráttu og þurfti oddalotu til að skera úr um hvor myndi vinna. Hjá Telpunum var Margrét Finnbogadóttir sigurvegari en hún lagði Sigríði Árnadóttur nokkuð örugglega í úrslitaleik. Í tvíliðaleiknum hjá strákunum voru mættir aftur þeir Daníel og Eiður Ísak en nú sem samherjar. Þeir sigruðu örugglega í úrslitaleiknum og hjá Telpunum sigruðu þær Jóna Hjartardóttir og Sigríður Árnadóttir. Í tvenndarleiknum urðu hlutskörpust þau Sigurður Sverrir Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir en allir sigurvegararnir koma úr TBR.

Drengir Telpur

Í elsta flokknum urðu sigurvegarar í einliðaleik þau Ólafur Örn Guðmundsson BH og Margrét Jóhannsdóttir TBR. Ólafur sigraði í úrslitum Snorra Tómasson TBR og Margrét lagði Söru Högnadóttur TBR í úrslitum en þær spiluðu báðar upp fyrir sig og ættu undir eðlilegum kringumstæðum að spila í Telpnaflokki. Í tvíliðaleik í Piltaflokki sigruðu TBR-ingarnir Snorri Tómasson og Stefán Ás Yngvarsson en Stefán er eins og Margrét og Sara í Drengjaflokki og spilaði því upp fyrir sig í mótinu. Hjá stelpunum unnu þær Margrét og Sara nokkuð örugglega. Í tvenndarleiknum sigruðu svo þau Ólafur Örn og Sara Högnadóttir.

Piltar Stúlkur