Nú fer óðum að styttast í að vetrarstarf TBR hefjist með öllu sem því tilheyrir. Bent er á að enn eiga einhverjir eftir að staðfesta velli fyrir komandi vetur og er óskað eftir að það sé gert sem fyrst svo hægt sé að ganga frá þeim málum. Barna og unglingastarfið hefst einnig þann 1. sept og er stundatöflunnar að vænta á allra næstu dögum og verður hægt að finna með því að smella hér. Listi yfir lausa tíma verður svo birtur eins fljótt og auðið er og má finna með því að smella hér
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur Gnoðarvogur 1 s: 581-2266 tbr@tbr.is