Lausir tímar

Reiknað er með greiðslu í upphafi tímabils. Hægt er þó að skipta greiðslum í nokkra hluta, ef um stærri upphæðir er að ræða. Allar nánari upplýsingar um verð má finna undir tenglinum verðskrá.

Hópur sem er skráður á ákveðinn völl telst samábyrgur fyrir greiðslu vallargjalda.

Sveigjanlegir hádegistímar í Húsi 2 virka daga - tímarnir enda kl. 13.30.

Einnig er hægt að kaupa 10 tíma kort. Þá er einungis hægt að panta 1 tíma í einu. Kortið gildir í 1 ár frá útgáfudegi. Þetta jafngildir greiðslu á 10 badmintontímum fyrir korthafa og félaga hans.

Framhaldsskólanemendur fá 50% afslátt á 10 tíma kortum, sem notuð eru af þeim og fjölskyldum þeirra.

Loks er hægt að leigja einn stakan badmintontíma.

Hver badmintontími er 50 mínútur.