Lausir tímar veturinn 2024-2025
Athugið
Þeir sem vilja láta bóka sig í fasta tíma skulu hafa samband við TBR í s. 581-2266. Jafnframt þarf að senda eftirtaldar upplýsingar á tbr@tbr.is : Nöfn - heimilisföng-símanúmer-kennitölur allra þeirra sem verða skráðir á viðkomandi badmintontíma. Samkvæmt þeim lista verða svo sendir út greiðsluseðlar.
Reiknað er með greiðslu í upphafi tímabils. Hægt er þó að skipta greiðslum í nokkra hluta, ef um stærri upphæðir er að ræða. Allar nánari upplýsingar um verð má finna undir tenglinum verðskrá.
Hópur sem er skráður á ákveðinn völl telst samábyrgur fyrir greiðslu vallargjalda.
Einnig er hægt að kaupa 10 tíma kort. Þá er einungis hægt að panta 1 tíma í einu. Kortið gildir í 1 ár frá útgáfudegi. Þetta jafngildir greiðslu á 10 badmintontímum fyrir korthafa og félaga hans.
Framhaldsskólanemendum býðst 25% afsláttur á 10 tíma kortum. Skólaafslátttur er eingöngu fyrir námsmenn og fjölskyldur á þeirra framfæri.
Loks er hægt að leigja einn stakan badmintontíma. Hægt er að bóka þá á www.noona.is/tbr
Hver badmintontími er 50 mínútur.
Rétt er að geta þess að viðkomandi tími getur verið bókaður nú þegar þessa vikuna, en laus eftir það.