Nýtt stigakerfi í badminton

Alþjóðabadmintonsambandið (BWF) samþykkti nýverið breytingu á stigakerfi í badminton. Alþjóðlega tekur breytingin gildi 4. janúar 2027, en aðildarsamböndum var gefinn kostur á að innleiða reglurnar fyrr. Á ársþingi Badmintonsambands Íslands var samþykkt að taka nýja kerfið upp strax haustið 2026. Því verður leikið eftir nýju stigakerfi á fyrsta móti keppnistímabilsins, Einliðaleiksmóti TBR, þann 4. september nk.
Til upplýsinga hefur Alþjóðabadmintonsambandið undanfarin ár rannsakað mismunandi stigakerfi með það að markmiði að þróa badmintonleikinn áfram. Samkvæmt niðurstöðum sambandsins skilar nýja kerfið meðal annars:
meiri spennu þar sem hvert stig vegur þyngra,
auðveldari dagskrárgerð á mótum,
minna líkamlegu álagi á leikmenn yfir langt keppnistímabil.
Á móti krefjast styttri lotur meiri einbeitingar frá fyrsta bolta, þar sem minna svigrúm er til að vinna upp forskot andstæðings.
Helstu breytingarnar eru:
Hver lota er leikin upp í 15 stig.
Leikhlé verður þegar fyrri leikmaður nær 8 stigum.
Í oddalotu (þriðju lotu) er skipt um vallarhelming þegar annar leikmaður nær 8 stigum.
Ef staðan verður 14–14 þarf að vinna með tveggja stiga mun. Hámarksstaðan er 21–20, þar sem sá sem nær 21 stigi vinnur lotuna.
TBR hvetur alla leikmenn og foreldra til að kynna sér breytingarnar fyrir mótið. Uppfærðar leikreglur á íslensku má finna hér á vefsíðu Badmintonsambands Íslands undir Lög og reglugerðir.
Við í TBR hlökkum til að hefja nýtt keppnistímabil og sjá hvernig nýja stigakerfið mun hafa áhrif á leikinn.



Comments