top of page
Search

TBR leikmenn á Evrópumótinu

Writer: TBR
TBR
Aug 21
1 min read

Liðakeppni Evrópumóts U19 í badminton í Tatabánya í Ungverjalandi er nú lokið og íslenska landsliðið hefur lokið keppni í liðakeppninni.


TBR átti þrjá fulltrúa í íslenska hópnum, þau Eggert Þór Eggertsson, Iðunni Jakobsdóttur og Óðin Magnússon. Þau hafa öll fengið mikilvæga reynslu á móti þar sem 30 þjóðir mæta til keppni og bestu unglingar Evrópu etja kappi.


Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir TBR að eiga þrjá leikmenn í íslenska U19 landsliðinu á þessu stóra móti. Þátttaka á Evrópumóti er mikilvægur hluti af þróun ungra afreksleikmanna og gefur þeim tækifæri til að mæta sterkustu leikmönnum Evrópu og öðlast reynslu sem nýtist áfram á þeirra keppnisferli.


Nú tekur einstaklingskeppnin við og þar halda Eggert, Iðunn og Óðinn áfram keppni fyrir Íslands hönd.


Við erum stolt af okkar fólki og óskum þeim góðs gengis í einstaklingskeppninni.


 
 
 

Recent Posts

See All
Einliðaleiksmót TBR 2026

Hér má sjá á Tournament Software: Einliðaleiksmót TBR 2026 - 4. september 2026 | Kl: 17:30 | Gnoðarvogi 1 https://www.tournamentsoftware.com/tournament/6F540F7F-274F-405D-91BA-4D6B64850421/matches

 
 
 

Comments


bottom of page