DEILDAKEPPNI BSÍ 2026-2027

Deildakeppni Badmintonsambands Íslands (BSÍ) tímabilið 2026–2027 fer fram í tveimur umferðum og verður keppt í 1. og 2. deild.
Dagskrá keppnistímabilsins
Fyrri umferð: 27. og/eða 29. nóvember 2026 hjá TBR í Reykjavík.
Seinni umferð: 5.–7. mars 2027 hjá BH í Hafnarfirði.
Fyrirkomulag keppninnar
Hvert lið leikur sjö leiki:
2 einliðaleikir karla
1 einliðaleikur kvenna
2 tvíliðaleikir karla
1 tvíliðaleikur kvenna
1 tvenndarleikur
Í hverju liði þurfa að vera að lágmarki sex leikmenn, tvær konur og fjórir karlar.
Skráningarfrestur er til 28. október 2026 á badminton@tbr.is
Þátttökugjald er 50.000 kr. á lið.
Við hvetjum TBR-félaga til að kynna sér keppnina og taka þátt í spennandi liðakeppni þar sem samvinna, liðsheild og keppnisandi skipta máli!
Nánari upplýsingar og reglur má finna í mótsboði á vefsíðu BSÍ.
Áfram TBR!



Comments