
Reykjavík International Games 2023
Badminton hefur verið hluti af Reykjavik International Games frá upphafi. Það hefur verið TBR sem hefur séð um framkvæmd mótsins. Í upphafi voru það aðallega Danir sem mættu til leiks auk Íslendinganna. Það hefur þó breyst örlítið og eru það aðallega Færeyingar sem sækja mótið núna. Mótið er unglingamót og er keppt í öllum aldursflokkum; U13(fædd 2010 og síðar), U15(fædd 2008 og 2009), U17(fædd 2006 og 2007) og U19(fædd 2004 og 2005). Í upphafi voru aðeins erlendir keppendur í U19 flokknum en í ár er reiknað með erlendum keppendum í öllum aldursflokkum.
Öllum þátttakendum er heimilt að skrá sig í allar greinar, þe. einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.
TBR býður upp á frábæra aðstöðu í Laugardalnum í húsi sem er eingöngu ætlað til badmintoniðkunnar. Húsið hefur 12 badmintonvelli á viðargólfi.
Dagskrá Reykjavík International Games 2023:
laugardagur 4. febrúar: Keppni hefst kl 09:00 og leikið fram eftir degi
sunnudagur 5. febrúar: Undanúrslit hefjast kl 09:00 og úrslit á eftir.
Til að komast á aðalsíðu Reykjavík International Games smellið hér