top of page

Athugið
Fastir vellir:
Tímabil TBR miðast við 1. september - 31. maí. Verð fyrir fasta tíma lækka í hlutfalli við hversu margar vikur eru eftir af vetrartímabilinu. Einnig er vert að nefna að öll verð miðast við leigu á velli og verð deilist niður á þá sem spila.
Athugið að árgjald félagsmanna er innifalið í fastri vallaleigu og 10 tíma kortum.
Spaðar og badmintonkúlur eru ekki innifaldar í verði. Hægt er að kaupa eða leigja spaða en kúlur verður að kaupa. Bæði fjaðra- og plastkúlur eru til sölu í verslun TBR sem og gott úrval af fyrsta flokks badmintonspöðum.
Æfingar:
Æfingagjöld eru fyrir hverja önn, semsagt haust og vorönn. Þeir sem eru skráðir á æfingar á miðri önn t.d. geta sótt um lægri æfingagjöld.

bottom of page