top of page
Search

TBR Opið 2026 fór fram um helgina

Writer: TBR
TBR
11 minutes ago
2 min read

TBR Opið 2026 fór fram í TBR-húsinu helgina 10.–11. október. Keppt var í úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild og keppt í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Mótið var fullt af spennandi leikjum og góðri keppni.


Úrslit í einliðaleik

Í úrvalsdeild karla sigraði Gústav Nilsson í TBR, en Róbert Ingi Huldarsson, BH varð í öðru sæti.

Í úrvalsdeild kvenna stóð Iðunn Jakobsdóttir í TBR uppi sem sigurvegari eftir úrslitaleik gegn Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur, BH.

Í 1. deild karla sigraði Sebastían Amor Óskarsson, TBS. Í 2. sæti var Aron Óttarsson, TBR.

Í 1. deild kvenna sigraði Sunna Karen Ingvarsdóttir, UMFA. Í 2. sæti var Þórdís Edda Pálmadóttir, TBR.

Í 2. deild karla hafði Birnir Hólm Bjarnason betur gegn Stefáni Eiríkssyni í úrslitaleik.

Í 2. deild kvenna sigraði Sunna María Ingólfsdóttir, UMFA. Í 2. sæti var Rebekka Einarsdóttir, Hamar.


Úrslit í tvíliðaleik og tvenndarleik

Í úrvalsdeild karla í tvíliðaleik sigruðu Daníel Jóhannesson og Davíð Bjarni Björnsson, en þeir unnu Ikmal Hussain Jaafar og Róbert Inga Huldarsson í úrslitaleiknum.


Í úrvalsdeild kvenna í tvíliðaleik sigruðu Arna Karen Jóhannsdóttir, TBR og Natalía Ósk Óðinsdóttir, BH.


Í 1. deild karla í tvíliðaleik báru Birkir Steinn Erlingsson og Einar Óskarsson sigur úr býtum gegn Einari Erni Þórssyni og Stefáni Eiríkssyni.


Í 2. deild karla sigruðu Birnir Hólm Bjarnason og Hilmar Karl Kristjánsson þá Ástþór Gauta Þorvaldsson og Tuan Tat.


Í 2. deild kvenna sigruðu Margrét Dís Stefánsdóttir, UMFA og Sigrún Marteinsdóttir, TBR.


Í úrvalsdeild tvenndarleiks sigruðu Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir þau Einar Óla Guðbjörnsson og Lilju Bu.


Í 1. deild sigruðu Sebastían Vignisson og Sólrún Anna Ingvarsdóttir, en í 2. deild unnu Haukur Þórðarson og Sigrún Marteinsdóttir.


TBR þakkar öllum keppendum, sjálfboðaliðum og þeim sem komu að framkvæmd mótsins fyrir þátttökuna og framlagið til góðrar badmintonhelgar.


Nánari úrslit má finna á Tournament Software.



 
 
 

Comments


bottom of page