Þrír TBR-leikmenn á EM U15

Í morgun hófst ferðalag þriggja leikmanna TBR á Evrópumeistaramót U15 í badminton, sem fram fer í Noregi. Mótið hefst á miðvikudag og stendur til laugardags.
Þau sem keppa fyrir Íslands hönd frá TBR eru Felix Krummi Lárusson, Perla Kim Arnardóttir og Sigrún Hekla Kjartansdóttir.
Við hjá TBR erum stolt af því að eiga þrjá fulltrúa í íslenska hópnum. Fyrir Felix, Perlu og Sigrúnu er þátttakan frábært tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi og halda áfram að þróast sem keppnisfólk. Við í TBR óskum þeim, sem og öllum íslenska hópnum, góðs gengis í Noregi og hlökkum til að fylgjast með næstu daga.
Hægt er að fylgjast með mótinu á eftirfarandi síðum:
Áfram Ísland og áfram TBR!



Comments