top of page
Search

Afreks- og þróunarmál í TBR taka breytingum

  • Sigfus Arnason
  • 3 days ago
  • 2 min read

Ragna Ingólfsdóttir hefur verið ráðin í starf Íþróttastjóra afreks- og þróunarmála hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. Ragna er tvöfaldur Ólympíufari í einliðaleik kvenna í badminton, en árin 2008 og 2012 keppti hún fyrir Íslands hönd í Peking og London á meðal bestu einliðaleiksspilara heims. Ragna átti að baki 20 Íslandsmeistaratitla og náði 37. sæti á heimslista í einliðaleik kvenna. Þá var hún meðal tíu efstu einliðaleikskvenna á Evrópumótaröðinni á meðan ferill hennar stóð sem hæst.


Ragna er uppalin í Laugardal en býr nú á Seltjarnarnesi með fjölskyldu sinni. Hún hefur starfað hjá TBR síðustu ár sem þjálfari í keppnishópi. Ragna er ekki aðeins framúrskarandi þjálfari, heldur einnig einstaklega skemmtileg, metnaðarfull og hvetjandi manneskja.


,,Ástríða mín er íþróttir, íþróttafólk og íþróttahreyfingin á Íslandi. Ég hef unnið við ýmislegt tengt íþróttum í gegnum tíðina, m.a. starfaði ég sem verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í sjö ár og þekki því íþróttahreyfinguna vel. Ég hef mikla reynslu úr íþróttaheiminum, en ég æfði badminton í 21 ár og þar af í 11 ár sem atvinnumaður. Ég öðlaðist dýrmæta reynslu í gegnum feril minn í badmintoninu, þar sem ég ferðaðist um allan heim og keppti á alþjóðlegum mótum til þess að koma mér sem hæst á heimslista og spila á meðal bestu einliðaleikskvenna í heimi. Sú reynsla nýtist mér vel í leik og starfi í dag.”

 

Ragna er með BA gráðu í heimspeki og sálfræði og lærður jógakennari og heilsunuddari. Hún er nú í meistaranámi í Íþróttavísindum með íþróttasálfræði sem sérgrein í Háskólanum í Reykjavík. Ragna hefur þjálfað keppnishóp barna- og unglinga ásamt meistaraflokki í TBR síðastliðin þrjú ár og þekkir því iðkendur TBR vel.

 

“Markmið mitt í starfi íþróttastjóra afreks- og þróunarmála er að byggja upp markvisst og faglegt afreksumhverfi í TBR. Ég vil leggja áherslu á að styrkja iðkendur sem hafa skýra sýn og metnað og veita þeim heildræna og einstaklingsmiðaða þjálfun. Við í TBR viljum fjölga iðkendum sem stefna á alþjóðlega mótaþátttöku, vilja koma sér ofar á heimslista og stefna á keppni á Evrópu- og heimsmeistaramótum ásamt Ólympíuleikum. Lykilatriði næstu ára hvað varðar þennan hluta starfsins er að byggja upp afreksmenningu í TBR þar sem fagmennska og metnaður eru í forgrunni og þar sem iðkendur fá þann stuðning sem þeir þurfa til að ná sínum hámarksárangri á heilbrigðan hátt. “

 

Þessi ráðning markar nýja tíma hjá TBR og í kjölfar hennar fáum við skýrari sýn á framtíð félagsins. Arna Karen, núverandi íþróttastjóri TBR, mun taka við barna- og unglingamálum, en Ragna tekur við afreks- og þróunarmálum. Þetta samræmist metnaði stjórnar og félagsins um að efla enn frekar grasrótarstarf, afreksstarf og framþróun innan félagsins til framtíðar. Á næstunni verður unnið að mótun stefnu fyrir komandi ár og er það trú okkar að núverandi teymi sé vel í stakk búið til þess verkefnis, og nú enn betur en áður.

Að því sögðu vita margir að vart finnast einstaklingar hér á landi sem hafa gert jafn mikið fyrir badminton og Ragna. Hún er TBR-ingur í húð og hár og eitt helsta andlit íþróttarinnar í dag, sem og á undanförnum árum.

Ragna er gift Steini Baugi Gunnarssyni, íþróttastjóra Nesklúbbsins og saman eiga þau Mána Gunnar 12 ára og Sögu Karitas 10 ára.


Við óskum Rögnu góðs gengis í nýju hlutverki sínu innan félagsins.

 
 
 

Recent Posts

See All
Mótsgjöld - Haustönn 2025

Keppendur & forráðamenn, Mótsgjöld fyrir Haust 2025 hafa verið send út til greiðslu des/jan. Yfirlit mótsgjalda fyrir hvern og einn eru prentuð út og má finna í móttöku í TBR. Takk fyrir góð mót og áf

 
 
 
TBR 87 ára - 4. desember

🎉 Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur fagnar 87 ára afmæli í dag!  🏸 Í dag fögnum við 87 árum af íþróttagleði, samvinnu og samfélagi. Frá stofnun árið 1938 höfum við unnið að því að skapa vettvang

 
 
 

Comments


bottom of page