top of page
Search

Deildakeppni BSÍ

Writer: TBR
TBR
4 days ago
1 min read

Síðasti skráningadagur fyrir TBR lið í Deildakeppni Badmintonsambands Íslands (BSÍ) tímabilið 2026–2027 er á morgun 31. október. Deildó fer fram í tveimur umferðum og verður keppt í 1. og 2. deild.


Fyrri umferð: 27. og/eða 29. nóvember 2026 hjá TBR í Reykjavík.

Seinni umferð: 5.–7. mars 2027 hjá BH í Hafnarfirði.


Hvert lið leikur sjö leiki:


  • 2 einliðaleikir karla

  • 1 einliðaleikur kvenna

  • 2 tvíliðaleikir karla

  • 1 tvíliðaleikur kvenna

  • 1 tvenndarleikur



Í hverju liði þurfa að vera að lágmarki sex leikmenn, tvær konur og fjórir karlar.


Skráningar skal senda á badminton@tbr.is


Þátttökugjald er 50.000 kr. á lið.


Við hvetjum TBR-félaga til að kynna sér keppnina og taka þátt í spennandi liðakeppni þar sem samvinna, liðsheild og keppnisandi skipta máli!


Nánari upplýsingar og reglur má finna í mótsboði á vefsíðu BSÍ.



Áfram TBR!

 
 
 

Comments


bottom of page