Foreldrafundur TBR

Við bjóðum til foreldrafundar hjá TBR þann 9. nóvember kl.17:00 í félagsheimili TBR.
Markmið fundarins er að efla samstarf foreldra, þjálfara og félagsins og ræða hvernig við getum saman skapað sem best umhverfi fyrir iðkendur TBR til að vaxa, dafna og ná framförum í badminton.
Á fundinum munum við meðal annars ræða:
Starf TBR, æfingar og mót.
Hlutverk foreldra og þjálfara og mikilvægi góðra samskipta.
Hvernig við getum stutt við iðkendur, bæði í daglegum æfingum og á mótum.
Við viljum eiga gott samstarf við foreldra og tryggja að við vinnum öll að sameiginlegu markmiði: að iðkendur okkar fái tækifæri til að þróast og njóta sín í íþróttinni.
Við hvetjum foreldra til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Hlökkum til að sjá ykkur!


Comments