Einliðaleiksmót TBR 2026
- TBR

- 1 day ago
- 1 min read
TBR býður til Einliðaleiksmóts TBR 2026 sem haldið verður í TBR-húsunum föstudaginn 4. september 2026.
Keppt verður í einliðaleik í Úrvalsdeild karla og kvenna.
Mótsfyrirkomulag
Keppni hefst kl. 17:30
Hámarksfjöldi þátttakenda er 16 karlar og 16 konur
Berist fleiri skráningar verður farið eftir styrkleikalista BSÍ
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að veita leikmönnum forgang
Keppt verður með beinni útsláttarkeppni
Þátttökugjald er 4.500 kr. á hvern keppanda.
Skráning fer fram hér: Einliðaleiksmót TBR 2026 - Skráning – Fill out form
Við hlökkum til að taka á móti keppendum og bjóðum alla velkomna á fyrsta mót keppnistímabilsins.



Comments