top of page
Search

Reykjavíkumeistaramót barna og unglinga 2026

Writer: TBR
TBR
Sep 23
1 min read

Reykjavíkumeistaramót barna og unglinga fór fram í TBR-húsinu helgina 19.–20. september. Badmintonráð Reykjavíkur sá um mótið og tókst mótið afar vel. Á laugardeginum var keppt í einliðaleik og á sunnudeginum í tvenndarleik, í aldursflokkum frá U11 upp í U19.


Það var gaman að sjá fjörið og stemninguna í húsinu yfir helgina. Ungir badmintonspilarar fengu tækifæri til að keppa, takast á við áskoranir og njóta þess að vera hluti af keppnisumhverfi þar sem gleði, virðing og samvinna skipta jafn miklu máli og árangurinn sjálfur.


Við hjá TBR viljum þakka öllum iðkendum, þjálfurum, foreldrum, Unglingaráði TBR, Foreldrafélagi TBR, sjálfboðaliðum og öðrum sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd mótsins. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að skapa það umhverfi sem við viljum sjá fyrir næstu kynslóð badmintonfólks.



 
 
 

Recent Posts

See All
Vetrarmót unglinga 2026 – Mótaskrá

Mótaskrá fyrir Vetrarmót unglinga 2026 er nú komin inn og hvetjum við alla iðkendur og foreldra til að kynna sér hana vel: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/0f82a80f-7b3d-486a-b698-b35e2e3

 
 
 
Deildakeppni BSÍ

Síðasti skráningadagur fyrir TBR lið í Deildakeppni Badmintonsambands Íslands (BSÍ) tímabilið 2026–2027 er á morgun 31. október. Deildó fer fram í tveimur umferðum og verður keppt í 1. og 2. deild. Fy

 
 
 

Comments


bottom of page