EM U19 – þrír TBR-ingar í íslenska landsliðinu
- TBR

- 1 day ago
- 1 min read
Íslenska U19 landsliðið í badminton tekur þátt á Evrópumóti U19 sem fer fram í Tatabánya í Ungverjalandi dagana 18.–27. ágúst. TBR á þrjá fulltrúa í landsliðshópnum: Eggert Þór Eggertsson, Iðunni Jakobsdóttur og Óðinn Magnússon. Þjálfarar í ferðinni eru Arna Karen Jóhannsdóttir og Sune Gavnholt.
Liðakeppni mótsins fer fram 18.- 22. ágúst. Að henni lokinni tekur einstaklingskeppnin við og lýkur henni 27. ágúst.
Leikir Íslands í liðakeppninni
Þriðjudagur 18. ágúst kl. 13:00 (íslenskur tími) – Spánn
Miðvikudagur 19. ágúst kl. 10:00 – Sviss
Fimmtudagur 20. ágúst kl. 07:00 – Ungverjaland
Það er afar ánægjulegt að sjá þrjá TBR-leikmenn skipa íslenska landsliðið á þessu stóra móti. TBR óskar Eggerti, Iðunni og Óðni, sem og öllu íslenska landsliðinu góðrar ferðar og alls hins besta í Ungverjalandi.
Hægt er að fylgjast með mótinu hér:
Liðakeppnin: Tournament details - Corporate - Fan Zone
Einstaklingskeppnin: Tournament details - Corporate - Fan Zone
Áfram Ísland – áfram TBR!




Comments