Heiða Björg í TBR
- TBR

- Feb 24
- 1 min read
Hverfadagar í Laugardal – borgarstjórinn kynnist TBR!
Í gær kom Heiða Björg, borgarstjóri Reykjavíkur, í heimsókn í TBR. Hún kynnti sér starf félagsins og skoðaði aðstöðuna.
Við áttum afar ánægjulega stund með Heiðu, sem fékk að sjálfsögðu Yonex-spaða og bolta að gjöf – og þar með áskorun um að mæta reglulega í badminton!Heiða lét heldur ekki sitt eftir liggja og spilaði einliðaleik á móti Rögnu – ekki amalegt að taka leik við ólympíufara!
Við þökkum borgarstjóra og hennar teymi kærlega fyrir heimsóknina.




Comments