Meistaramót BH og RSL

Meistaramót Badmintonfélags Hafnarfjarðar og RSL verður haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 20.-22. nóvember 2026. Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.
Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í eftirtöldum deildum:
• Úrvalsdeild
• 1. deild
• 2. deild
Keppt verður í riðlum í einliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í tvíliðaleik.
Reikna má með að keppni í einliðaleik hefjist á föstudag kl.17 og ljúki á laugardag. Tvíliða- og tvenndarleikir verða spilaðir á laugardag og sunnudag en tímasetningar á því fara eftir skráningu. Nánari dagskrá verður birt þriðjudaginn 17. nóvember.
Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 11. nóvember kl.12.
Mótsgjöld eru 6.000 krónur fyrir einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.
Spilað verður á keppnismottum BH og boðið uppá beina útsendingu og lifandi úrslit á Youtube.
Skráning fyrir TBR leikmenn fer fram hér: https://forms.cloud.microsoft/e/uH6wq0ufrs

Comments