Næringin skapar meistarann
- TBR

- 12 minutes ago
- 1 min read
Mikilvægi góðrar næringar fyrir árangur og vellíðan í íþróttum var í brennidepli þegar Elísa Viðarsdóttir, næringarfræðingur og fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, hélt fyrirlesturinn „Næringin skapar meistarann“ fyrir keppnishópa TBR.
Alls sátu 34 leikmenn fyrirlesturinn og fengu hagnýta fræðslu um hvernig rétt næring getur stutt við æfingar, keppni, endurheimt og langtímaþróun íþróttafólks. Meðal þess sem farið var yfir var mikilvægi þess að fá næga orku yfir daginn, tímasetja máltíðir vel í tengslum við æfingar og keppni, huga að vökvainntöku og velja næringarríkan mat sem styður við frammistöðu og heilsu.
Elísa hefur á undanförnum árum verið leiðandi í fræðslu um næringu íþróttafólks á Íslandi. Hún er með meistaragráðu í íþróttanæringarfræði, hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir íþróttafélög, skóla og íþróttahreyfinguna og er höfundur bókarinnar Næringin skapar meistarann, þar sem hún leggur áherslu á að góður árangur byggist ekki aðeins á æfingum heldur einnig á góðum lífsvenjum og markvissri næringu.
Fræðsla af þessu tagi er mikilvægur þáttur í afreksstarfi TBR. Markmið félagsins er að veita leikmönnum ekki aðeins góða þjálfun inni á vellinum heldur einnig þekkingu og verkfæri sem hjálpa þeim að taka skynsamlegar ákvarðanir utan hans.
TBR þakkar Elísu kærlega fyrir frábæran og fróðlegan fyrirlestur og hrósar leikmönnum TBR fyrir góða mætingu og áhuga.





Comments