TBR eflir samstarf við foreldra

TBR hélt í nóvember tvo foreldrafundi með það að markmiði að efla samstarf við foreldra, styrkja tengslin í kringum iðkendur félagsins og bæta upplýsingagjöf og samskipti.
Góður áhugi á opnum foreldrafundi
Opinn foreldrafundur fyrir foreldra allra iðkenda TBR var vel sóttur en hátt í 60 foreldrar mættu. Á fundinum var farið yfir starf félagsins, þjálfarateymið, æfingafyrirkomulag, þróunarleið iðkenda, mót og framtíðarsýn TBR. Einnig sköpuðust góðar umræður um upplýsingagjöf, samskipti og ýmis önnur málefni sem snerta starf félagsins. TBR tekur ábendingar og sjónarmið foreldra með sér í áframhaldandi þróun starfsins. Við viljum eiga gott og öflugt samstarf við foreldra og skapa umhverfi þar sem allir vinna saman að velferð og framförum iðkendanna.
Eitt af markmiðum félagsins er að efla foreldrafélagið og skapa fleiri tækifæri fyrir foreldra til að taka þátt í starfinu, meðal annars með félagslegum viðburðum, fjáröflunum og stuðningi við mót og keppnisferðir. Með öflugra foreldrasamstarfi getum við styrkt hópinn í kringum börnin okkar og skapað enn betri umgjörð fyrir iðkendur.
Sérstakur fundur fyrir foreldra af erlendum uppruna
TBR hélt einnig sérstakan foreldrafund fyrir foreldra iðkenda af erlendum uppruna. Markmið fundarins var að efla tengsl félagsins við þessar fjölskyldur, kynna starfsemi TBR og skapa vettvang fyrir samtal, spurningar og upplýsingagjöf.
Fundurinn var skipulagður í samstarfi við Örnu Hrönn Aradóttur, verkefnastjóra forvarna, lýðheilsu og félagsauðs hjá Norðurmiðstöð Reykjavíkurborgar. Fulltrúar frá Reykjavíkurborg, Norðurmiðstöð og öðrum þjónustueiningum borgarinnar komu einnig að fundinum.
Til að auðvelda samskipti og tryggja að allir gætu tekið þátt voru tveir túlkar til staðar, annars vegar víetnamskur túlkur og hins vegar túlkur sem sinnti ensku og filippseysku.
Á fundinum var meðal annars rætt um starf TBR, æfingar, samskipti við félagið og mikilvægi þess að foreldrar hafi góðan aðgang að upplýsingum og viti hvert þeir geti leitað með spurningar. Samstarf við brúarsmiði og aðra aðila sem styðja fjöltyngdar fjölskyldur getur verið mikilvægur liður í því að byggja upp traust og tengsl milli íþróttafélagsins og fjölskyldna iðkendanna. Þátttaka foreldra á fundinum hefði mátt vera meiri, en við lítum á fundinn sem mikilvægt skref í áframhaldandi vinnu. Við viljum ná betur til foreldra af erlendum uppruna, hlusta á þarfir þeirra og tryggja að tungumál eða skortur á upplýsingum verði ekki hindrun fyrir þátttöku barna í íþróttastarfi.
Við erum öll hluti af TBR
Það er sameiginlegt verkefni félagsins, þjálfara og foreldra að skapa jákvætt og öruggt íþróttaumhverfi þar sem iðkendur finna að þeir tilheyri, fái tækifæri til að þroskast og njóta þess að taka þátt.
TBR þakkar öllum foreldrum sem mættu á fundina, tóku þátt í umræðum og deildu sínum sjónarmiðum. Sérstakar þakkir fær Arna Hrönn og samstarfsfólk hennar hjá Reykjavíkurborg fyrir gott samstarf við skipulagningu og framkvæmd fundarins.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og viljum halda áfram að þróa TBR í góðu samtali við foreldra og fjölskyldur iðkenda.
Með fréttinni má nálgast glærukynningar frá báðum foreldrafundunum.




Comments