top of page
Search

TBR tekur þátt í Farsældarviku höfuðborgarsvæðisins

  • Sigfus Arnason
  • 2 hours ago
  • 1 min read


Dagana 9.–16. mars fer fram Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins, þar sem vakin er athygli á mikilvægi farsældar barna og hlutverki þeirra sem starfa með börnum.

Íþróttafélög gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna og ungmenna. Samkvæmt íþróttalögum skal velferð og farsæld barna ávallt höfð að leiðarljósi í íþróttastarfi, og þeim sem starfa með börnum ber að vera vakandi fyrir líðan þeirra.

Íþróttaumhverfið getur haft mjög jákvæð áhrif á líf barna. Með því að vera vakandi fyrir líðan iðkenda og bregðast við þegar þörf er á getum við öll lagt okkar af mörkum til að tryggja öruggt, jákvætt og styðjandi íþróttaumhverfi fyrir börn og ungmenni.


Við hjá TBR fögnum Farsældarviku höfuðborgarsvæðisins og leggjum okkar af mörkum til að huga að farsæld þeirra iðkenda sem æfa hjá félaginu.


Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu þeirra aðila sem starfa með börnum. Þegar ólík kerfi vinna saman, deila ábyrgð og fylgja sameiginlegu verklagi er auðveldara að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.


Markmiðið er að starfsfólk sem vinnur með börnum verði enn betur í stakk búið til að bregðast við þegar þörf er á og að foreldrar og börn viti að hvert barn hefur tengilið sem getur komið á samræmdum stuðningi ef upp koma aðstæður sem kalla á það.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðunni:https://www.farsaeldbarna.is/

 
 
 

Recent Posts

See All
Afreks- og þróunarmál í TBR taka breytingum

Ragna Ingólfsdóttir hefur verið ráðin í starf Íþróttastjóra afreks- og þróunarmála hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. Ragna er tvöfaldur Ólympíufari í einliðaleik kvenna í badminton, en árin

 
 
 

Comments


bottom of page