top of page
Search

BADÍS 2026 vel heppnað

  • Writer: TBR
    TBR
  • 2 days ago
  • 2 min read

BADÍS, nýjar badmintonæfingabúðir, sem TBR, BH og ÍA standa saman að fóru fram á Akranesi í fyrsta sinn dagana 17.-19.ágúst 2026. Þar komu saman 36 leikmenn fæddir á árunum 2012–2015 frá sex badmintonfélögum víðsvegar af landinu. BADÍS búðir fyrir leikmenn fædda 2011 og eldri eru síðan á dagskrá helgina 11.-13. september og verður skráning opin til 3. september hér í Abler.


Óhætt er að segja að fyrri æfingabúðirnar hafi gengið einstaklega vel. Þrír skemmtilegir og viðburðaríkir dagar á Akranesi fóru fram í góðum félagsskap þar sem þátttakendur fengu að njóta góðrar badmintonþjálfunar, fjölbreyttrar hreyfingar og skemmtilegrar dagskrár utan vallar. Einnig gafst þátttakendum tækifæri til að kynnast betur og styrkja félagstengsl við badmintoniðkendur úr öðrum félögum. Stemningin í búðunum var frábær og það var virkilega gaman að sjá hversu vel þátttakendur tóku þátt í bæði æfingum og félagslegri dagskrá.


Aðstaðan á Akranesi er einstaklega góð til að halda æfingabúðir eins og þessar. Í íþróttasalnum eru 7 badmintonvellir sem auðvitað voru vel nýttir en í sama húsnæði er einnig fullbúinn fimleikasalur, stór klifurveggur og 3 brauta keilusalur sem frábært var að nýta milli badmintonæfinga í samstarfi við félögin á staðnum. Einnig er í húsnæðinu eldhús og aðstaða til að borða auk minni íþróttasala sem þátttakendur gistu í á dýnum sem ÍA á. Þá var stutt að ganga í sund þar sem gott var að skola af sér og slaka á eftir erfiðar æfingar.


Þjálfarar í fyrri æfingabúðunum voru Kristófer Darri, Una Hrund, Sólrún Anna og Kjartan Ágúst. Þau stýrðu fjölbreyttum æfingum þar sem markmiðið var að efla tæknilega færni, leikskilning, hreyfigetu og keppnishugsun. Spurningakeppni, leikgreining og ýmsir hópeflisleikir voru einnig hluti af dagskránni hjá þeim. Irena Rut og Karitas sáu um matinn sem var mikil ánægja með en þátttakendur fengu morgunmat, heitan mat tvisvar á dag ásamt heimabökuðu góðgæti og ávaxta milli mála. Anna Lilja sá um að halda utan um dagskrá, samskipti og skipulag. TBR þakkar þeim fyrir sitt framlag.


Von okkar er að BADÍS æfingabúðirnar verði árlegur viðburður sem styrkir bæði badmintoniðkendur og badmintonfélög landsins, gefur leikmönnum tækifæri til að kynnast þvert á félög og stuðlar að áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar.


Áfram badminton á Íslandi!











 
 
 

Comments


bottom of page