TBR leikmenn ljúka keppni á EM U19
- TBR

- 2 days ago
- 1 min read
U19 landsliðshópur Íslands er nú kominn heim eftir viðburðaríka daga á Evrópumeistaramótinu í Tatabánya í Ungverjalandi. Eftir að liðakeppninni lauk tók einstaklingskeppnin við. Þar kepptu TBR-leikmennirnir Eggert Þór Eggertsson, Iðunn Jakobsdóttir og Óðinn Magnússon áfram fyrir Íslands hönd í sínum greinum.
Þrátt fyrir að TBR-leikmennirnir hafi ekki komist áfram í einstaklingskeppninni stóðu þau sig vel og öðluðust mikilvæga reynslu af keppni á stærsta sviði Evrópu í sínum aldursflokki.
Þjálfarar hópsins lýsa mikilli ánægju með frammistöðu keppenda, bæði innan vallar sem utan. Þótt úrslitin hafi ekki fallið íslenska hópnum í hag var jákvæður stígandi í leik liðsins í gegnum mótið og keppendur öðluðust dýrmæta reynslu sem mun nýtast þeim áfram á þeirra keppnisferli.
Við í TBR erum afar stolt af okkar fólki og sérstaklega ánægjulegt að sjá okkar þrjá leikmenn fá tækifæri til að mæta sterkustu ungum badmintonleikmönnum Evrópu.








Comments