TBR leikmenn á Evrópumótinu
- TBR

- 11 minutes ago
- 1 min read
Liðakeppni Evrópumóts U19 í badminton í Tatabánya í Ungverjalandi er nú lokið og íslenska landsliðið hefur lokið keppni í liðakeppninni.
TBR átti þrjá fulltrúa í íslenska hópnum, þau Eggert Þór Eggertsson, Iðunni Jakobsdóttur og Óðin Magnússon. Þau hafa öll fengið mikilvæga reynslu á móti þar sem 30 þjóðir mæta til keppni og bestu unglingar Evrópu etja kappi.
Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir TBR að eiga þrjá leikmenn í íslenska U19 landsliðinu á þessu stóra móti. Þátttaka á Evrópumóti er mikilvægur hluti af þróun ungra afreksleikmanna og gefur þeim tækifæri til að mæta sterkustu leikmönnum Evrópu og öðlast reynslu sem nýtist áfram á þeirra keppnisferli.
Nú tekur einstaklingskeppnin við og þar halda Eggert, Iðunn og Óðinn áfram keppni fyrir Íslands hönd.
Við erum stolt af okkar fólki og óskum þeim góðs gengis í einstaklingskeppninni.





Comments